Húsnæði í Víðinesi með 30 herbergjum til leigu
Reykjavíkurborg auglýsir til leigu fasteignina Víðines, alls 2.042,1 m2 að stærð. Eignin samanstendur af þremur samtengdum húsum með um 30 herbergjum auk þjónusturýma og eldhúss.
Húsið hefur staðið autt um nokkurt skeið og er því þörf á viðhaldi og endurbótum. Leigutaki tekur við eigninni í því ástandi sem hún er í við afhendingu.
Tilboðum skal fylgja lýsing á fyrirhugaðri nýtingu eignarinnar.
Frekari upplýsingar veitir skrifstofa eignastýringar hjá Reykjavíkurborg á netfanginu eignastyring@reykjavik.is.
Reykjavíkurborg áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna ölum tilboðum.
Boðið er til skoðunarferðar um eignina mánudaginn 14. september, kl. 13:00-14:00. Tilboðum um leiguverð ásamt upplýsingum um fyrirhugaða nýtingu hússins skal skila í tölvupósti merkt „Víðines leiga“ á eignastyring@reykjavik.is fyrir kl. 12:00 föstudaginn 25. september 2026.
Tilboðsfrestur er til 25. september nk. kl. 12:00. Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur.