Leikskólinn Árborg - endurgerð og færanlegar kennslustofur

Húsnæði leikskólans Árborgar gengst undir heildarendurnýjun. Samhliða er færanlegum kennslustofum komið fyrir á lóð skólans.
2022 - 2026
Undirbúningur
Undirbúningur
Í framkvæmd
Í framkvæmd
Lokið
Lokið

Myndir

Hvað verður gert?

Leikskólinn Árborg er byggður í tveimur áföngum, sá fyrri var reistur 1962 og byggt við hann árið 1997.

Verkið felst í endurgerð og endurbótum á hvorutveggja eldra húsi og viðbyggingu. Í eldra húsi er um að ræða endurnýjun þakvirkis, glugga og loftræstri utanhússklæðningu. Á viðbyggingu einskorðast utanhússframkvæmdir við gluggaendurnýjun. 

Báðir áfangar fá heildaruppfærslu að innan þar sem tekið er tilliti til nútímakrafna til leikskólahúsnæðis svo sem:

  • Bætt kennslurými ásamt uppfærðri starfsmannaaðstöðu
  • Hljóð-og ljósvist verður stórbætt
  • Varmaskiptakerfi verður í loftræsingu
  • Brunavarnir verða uppfærðar til nútímakrafna
  • Flest allar lagnir eru endurnýjaðar, allar í eldra húsi en að hluta í viðbyggingu
  • Við endurgerð leikskólans verður gerð krafa um notkun umhverfisvænna byggingarefna

 

Samhliða verður tveimur færanlegum kennslustofum komið fyrir á norðausturenda lóðarinnar. Stofurnar eru 69m2 og 92m2 á einni hæð ásamt 39m2 tengibyggingu.  Kennslustofurnar verða fullsmíðaðar úr timbri og fluttar í heilu lagi á verkstað og tengdar saman með tengibyggingu. Kennslustofunum er ætlað að fjölga deildum á leikskólanum auk þess að bæta aðstöðu starfsmanna. Áætlað er að tilkoma kennslustofanna geti fjölgað börnum við leikskólann um rúmlega 20.

Hvernig gengur?

September 2026

Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindarmála hafa tekið fyrir kröfu kærenda um ógildingu ákvörðunar byggingarfulltrúans í Reykjavík um byggingu færanlegra kennslustofa við Árborg. Kröfunum er hafnað. Fyrri úrskurði í málinu má finna hér og hér

Áætlað er að framkvæmdum við smíði færanlegu stofanna verði lokið í október.

Júlí 2026

Lóðaframkvæmdir og hellulagning í gangi.

Í meginhúsi eru loftadúkar komnir í loft og verið að festa ljós og annað tilheyrandi í loft. Dúklagningu á gólf að mestu lokið. 

Júní 2026

Byggingarleyfi komið fyrir færanlegar kennslustofur.

Hver koma að verkinu?

Skrifstofa framkvæmda og fasteignaþjónustu Reykjavíkurborgar

Verkkaupi

VSÓ ráðgjöf

Verkstýring undirbúningsvinnu, loftræstihönnun og Svansvottunarráðgjöf

K16

Verktaki við endurgerð Árborgar

GLÁMA-KÍM

Aðalhönnun

MG Hús

Verktaki við smíði og uppsetningu færanlegra kennslustofa
Last updated 11.09.2026