Leikskólinn Vesturborg – kennslustofur, hönnun, smíði og lóðarfrágangur

Uppsetning fjögurra færanlegra kennslustofa við leikskólann Vesturborg.
2025 - 2026
Undirbúningur
Undirbúningur
Í framkvæmd
Í framkvæmd
Lokið
Lokið

Yfirlitsmyndir

Hvað verður gert?

Framkvæmdin i felur í sér hönnun, smíði, flutning og uppsetningu á fjórum kennslustofum og tveimur tengibyggingum, ásamt hönnun og framkvæmd jarðvinnu, gerð undirstaða og lagningu allra lagna í grunni. Verkið nær einnig til lóðarvinnu í samræmi við fyrirliggjandi hönnun.

Kennslustofurnar eru hver um sig 14,9m x 6,4m eða um 96m2 á einni hæð ásamt tveim tengibyggingum, um 40m2 og 50m2 hvor. Samtals er því nýja húsnæðið um 474m2 að stærð. Kennslustofurnar skulu vera byggðar úr timbri. Hverja kennslustofu á að vera hægt að flytja í heilu lagi, setja niður á lóð leikskólans og tengja saman með tengibyggingu.

Verkið felur í sér eftirfarandi verkþætti:

• Hönnun og smíði fjögurra kennslustofa og tveggja tengibygginga við leikskólann

• Lóðarfrágang á tengdum svæðum samkvæmt fyrirliggjandi hönnun

• Lagningu stofnlagna fyrir kennslustofur ásamt tengingu við viðeigandi kerfi samkvæmt fyrirliggjandi hönnun.

Samþykkt hefur verið niðurrif á húsi vestast á lóðinni og koma því kennslustofurnar í stað þess.

Áætlað er að tilkoma kennslustofanna geti fjölgað börnum við leikskólann um 45.

Hvernig gengur?

Ágúst 2026

Búið er að setja dúk og bárujárn á öll þök. 

Vinnu einnig lokið við lagningu jarðvatnslagna við eldra húsnæði Vesturborgar. 

vesturborg
Unnið að jarðvatnslögnum

 

vesturborg

Júlí 2026

Stálbitar komnir á staðinn undir tvö hús og veggjagrindur reistur fyrir fjögur hús og plötuklæddar.

vesturborg
Steypt er undir stálbita

 

vesturborg
Húsin að taka á sig mynd

Maí 2026

Byggingarleyfi gefið út. Séruppdrættir að mestu tilbúnir ásamt lóðahönnun. 

Byrjað að moka fyrir púða og koma með efni.

Hver koma að verkinu?

Skrifstofa framkvæmda og fasteignaþjónustu Reykjavíkurborgar

Verkkaupi

Hnit Verkfræðistofa

Eftirlit og byggingarstjórn framkvæmda

MG hús

Verktaki

Efla

Verkefnisstjórn

BÓ verk ehf

Aðalhönnun
Last updated 09.09.2026