Leikskólinn Hólaborg – kennslustofur, hönnun, smíði og lóðarfrágangur
Hvað verður gert?
Framkvæmd felur í sér hönnun, smíði og flutning þriggja kennslustofa. Kennslustofunar eru á einni hæð, hver um sig 14,9m x 6,4m að stærð, eða um 96m². Auk þess verða reistar milli húsanna tvær tengibyggingar, annars vegar um 40m² og hins vegar um 30m².
Heildarstærð nýs húsnæðis verður því um 360m². Kennslustofurnar skulu byggðar úr timbri og uppfylla viðeigandi byggingarkröfur og reglugerðir. Verkið nær einnig til lóðarvinnu í samræmi við fyrirliggjandi hönnun.
Samhliða verða jarðvatnslagnir lagfærðar á núverandi húsnæði leikskólans.
Áætlað er að tilkoma kennslustofanna geti fjölgað börnum við leikskólann um 35 auk þess að bæta starfsmannaaðstöðu umtalsvert.
Hvernig gengur?
September 2026
Unnið er að smíði stofanna erlendis og þær væntanlegar til landsins í vetur. Áætluð verklok eru í febrúar 2027.
Ágúst 2026
Búið að endurnýja regnvatnslögn og byrjað að leggja drenlagnir. Búið að steypa stoðvegg.
Júlí 2026
Byggingarleyfisumsókn samþykkt. Verið að grafa fyrir stoðvegg.
Maí 2026
Vinna hafin við lagningu nýrrar heimtaugar og lagfæringar á jarðvatnslögnum Hólaborgar.
Janúar 2026
Gengið að tilboði Terra eininga. Áætluð verklok eru desember 2026.
Nóvember 2025
Útboðsferli hefst.