Leikskólinn Maríuborg – kennslustofur, hönnun, smíði og lóðarfrágangur

Uppsetning tveggja færanlegra kennslustofa við leikskólann Maríuborg.
2025 - 2027
Undirbúningur
Undirbúningur
Í framkvæmd
Í framkvæmd
Lokið
Lokið

Yfirlitsmyndir

Hvað verður gert?

Framkvæmd felur í sér hönnun, smíði, flutning og uppsetningu tveggja kennslustofa ásamt tengibyggingu við leikskólann Maríuborg. Verkefnið nær einnig til hönnunar og framkvæmdar jarðvinnu, gerðar undirstaða og lagningar allra lagna í grunni. Að auki felur verkið í sér lóðarvinnu, lagningu og tengingu stofnlagna við viðeigandi kerfi samkvæmt fyrirliggjandi hönnun.


Kennslustofurnar eru hver um sig 14,9m x 6,4m eða um 96m2 á einni hæð ásamt tengibyggingu, um 40m2. Samtals er því nýja húsnæðið um 232m2 að stærð. Kennslustofurnar skulu vera byggðar úr timbri. Hverja kennslustofu á að vera hægt að flytja í heilu lagi, setja niður á lóð leikskólans og tengja saman með tengibyggingu.

 

Verkið felur í sér eftirfarandi verkþætti: 
• Hönnun og smíði tveggja kennslustofa og tengibyggingar við leikskólann, þar með talið jarðvinnu og gerð undirstaða fyrir kennslustofurnar (alverktaka). 
• Lóðarfrágang á tengdum svæðum samkvæmt fyrirliggjandi hönnun. 
• Lagningu stofnlagna fyrir kennslustofur ásamt tengingu við viðeigandi kerfi samkvæmt fyrirliggjandi hönnun. 

Áætlað er að tilkoma kennslustofanna geti fjölgað börnum við leikskólann um 22.

Hvernig gengur?

September 2026

Unnið er að smíði stofanna erlendis og þær væntanlegar til landsins í vetur. Áætluð verklok eru í apríl 2027.

Ágúst 2026

Aðaluppdrættir samþykktir og byggingarleyfi liggur fyrir. Séruppdrættir í vinnslu. Húsin eru í smíði erlendis og ráðgert að þau komi til landsins í vetur.

Jarðframkvæmdir eru hafnar á lóð Maríuborgar.

Júlí 2026

Unnið að gerð aðaluppdrátta.

Hver koma að verkinu?

Skrifstofa framkvæmda og fasteignaþjónustu Reykjavíkurborgar

Verkkaupi

VSÓ ráðgjöf

Eftirlit

Terra einingar

Verktaki

Norconsult

Byggingarstjórn

Efla

Verkefnisstjórn

Noland Arkitektar

Arkitektúr
Last updated 11.09.2026