Héðinsreitur (Vesturvin) - Yfirborðsfrágangur 2026
Hvað verður gert?
Verkið felst í yfirborðsfrágangi á Héðinsreit eða Vesturvin eins og uppbyggingarreiturinn er einnig kallaður.
Framkvæmdasvæðið er við gatnamót Vesturgötu og Ánanausta og upp Vesturgötu. Verkið felst að mestu í hellulögn á nýjum gönguleiðum, upphækkaðrar gönguþverunar yfir Vesturgötu ásamt gerð gróðurbeða og uppsetningu ljósastólpa.
Hvernig gengur?
September 2026
Verktaki hóf vinnu í seinni hluta júlí og hefur lokið hellulögn frá Ánanaustum og uppfyrir innkeyrslu í bílakjallara Héðinsreitar í Vesturgötu. Búið er að leggja snjóbræðslu við innkeyrslu í bílarampa á vegum Héðinsreitar.
Búið er að setja niður ljósastaura austan megin í Vesturgötu.
Áætlað er að hefja vinnu við gangstétt vestan megin í Vesturgötu í október.
Einnig er plöntun í gróðurbeð við Ánanaust og Vesturgötu í undirbúningi og er áætlað að þeirri vinnu geti verið lokið í október.
Júní 2026
Tafir urðu á verkstöðu verktaka og tókst ekki að hefja framkvæmdir eins fljótt og áætlað var. Verktaki hefur sagað malbik og stefnir á að hefja upprif í byrjun júlí.
Maí 2026
Reykjavíkurborg hefur samið við Kröflu ehf. sem verktaka framkvæmda. Verkfræðistofa Reykjavíkur verður með eftirlit með framkvæmdaverki.
Áætlað er að famkvæmdir hefjist í byrjun júní.