Laugardalslaug - framkvæmdir við stúku
Hvað verður gert?
Unnið er að niðurrifi á stúkumannvirki Laugardalslaugar. Samhliða er unnið að uppbyggingu á nýju þaki yfir rýmum undir stúkunni.
Hvernig gengur?
Ágúst 2026
Unnið að hönnun á niðurrifi stúkunnar og útfærslu á nýju þaki yfir rýmum undir stúkunni.
Júní 2026
Unnið nýtt áhættumat á stúkunni af Verkís. Niðurstaða áhættumatsins er afdráttarlaus og kallar á tafarlausa lokun skilgreindra svæða. Fimm heitum pottum undir stúkumannvirkinu lokað og gufubaði og sérklefum undir stúkunni einnig.
Júní 2024
Fyrirhugað að hefja hönnunarsamkeppni á Laugardalslaug og tengdum mannvirkjum, þar á meðal stúkumannvirki. Bréf þess efnis lagt fram í Borgarráði ásamt úttektarskýrslu.
Desember 2023
Áhættumat vegna ástands stúkunnar unnið af Verkís. Talin er vera of mikil áhætta sem stafar af mannvirkinu til þess að verjandi sé að láta það standa áfram.
Júní 2023
Úttekt unnin af Verkís sem bendir til þess að mannvirkið sé illa farið af völdum alkalískemmda, rakaálags og tæringu í járnbendingu. Víða eru skemmdir þess eðlis að ákveðnir byggingarhlutar eru af skýrsluhöfundum taldir óviðgerðarhæfir.
Júní 2020
Úttekt unnin af Verkfræðistofu Reykjavíkur á ástandi stúkunnar. Þrátt fyrir talsverðar ryðskemmdir og rýrðan burðarstyrk er það mat höfunda úttektarinnar að engin yfirvofandi hætta sé á hruni.