KR - fjölnotahús

Upplýsingasíða vegna fjölnota íþróttahúss á svæði KR í Vesturbæ Reykjavíkur.
Áætluð verklok 31. des 2026
Undirbúningur
Undirbúningur
Í framkvæmd
Í framkvæmd
Lokið
Lokið

Yfirlitsmynd af svæði KR í Frostaskjóli

Hvað verður gert?

Fyrirhugað er að reisa 6.900 m2 fjölnota íþróttahús á svæði KR í Vesturbæ Reykjavíkur. Byggingin verður inni á miðju íþróttasvæði KR milli keppnis- og æfingavellar. Miðað er við að húshlutinn sem hýsir knattspyrnuæfingar verði stálgrindarhús. Í stálgrindarhúsinu er gert ráð fyrir að hægt verði að æfa knattspyrnu innandyra á gervigrasvelli og er miðað við að hægt sé að keppa mótsleiki í 8 manna bolta. 

Eins og heitið gefur til kynna er byggingin fjölnota þó knattspyrnuæfingar séu rúmfrekasti þáttur væntanlegrar starfsemi í byggingunni, einnig er gert ráð fyrir fjölnota sölum fyrir m.a. taekwondo, skák, pílu, tónlistaskóla o.fl., auk funda- og samkomuhalds af ýmsum toga. Í hliðarbyggingu hússins er gert ráð fyrir skrifstofurýmum, lyftingarsal, fundarsölum og öðrum rýmum sem tengjast starfsemi hússins.

Hvernig gengur?

Apríl 2026

Góður gangur á hönnunarvinnu. Gröftur í verkinu á áætlun.

Maí 2026

Samhliða  hönnunarvinnu hefur Eykt verið að vinna í því að grafa fyrir byggingunni.

Febrúar 2026

Byggingaleyfi hefur verið gefið út og verktaki er byrjaður að koma fyrir aðstöðu fyrir starfsmenn.

Hver koma að verkinu?

Verkkaupi Reykjavíkurborg

Verkefnastjóri - nýbyggingar
Kristján Sigurgeirsson

Framkvæmdaraðili Eykt ehf

Eykt ehf sér um aðalhönnun framkvæmdar

Arkitektar

VA arkitektar ehf
Síðast uppfært 10.09.2026