Leikskólinn Grandaborg - kennslustofur, hönnun, smíði og lóðarfrágangur

Uppsetning tveggja færanlegra kennslustofa við leikskólann Grandaborg.
2026 - 2027
Undirbúningur
Undirbúningur
Í framkvæmd
Í framkvæmd
Lokið
Lokið

Myndir

Hvað verður gert?

Verkið felur í sér hönnun, smíði, flutning og uppsetningu á tveimur kennslustofum og tengibyggingu, ásamt hönnun og framkvæmd jarðvinnu, gerð undirstaða og lagningu allra lagna í grunni. Þar með talið eru frárennslislagnir (skólp og regnvatn), rafmagnslagnir, hitavatnslagnir og neysluvatnslagnir að tengipunktum við púða (fyllingu) á lóð leikskólans Grandaborg.

Kennslustofurnar eru hver um sig 14,9m x 6,4m eða um 96 m² á einni hæð ásamt einni tengibyggingu, um 30 m² samtals og er því nýja húsnæðið um 222 m² að stærð. Kennslustofurnar verða vera byggðar úr timbri. Hverja kennslustofu á að vera hægt að flytja í heilu lagi, setja niður á lóð leikskólans og tengja saman með tengibyggingu.

Áætlað er að tilkoma færanlegu kennslustofanna geti fjölgað börnum í Grandaborg um 30.

Hvernig gengur?

September 2026

Hönnun er langt komin og lóðarframkvæmdir að hefjast. Áætluð verklok eru í ágúst 2027.

Júlí 2026

Unnið að gerð aðaluppdrátta og séruppdrátta. Stefnt að því að jarðvegsframkvæmdir hefjist í ágúst.

Maí 2026

Tilboð í útboð verkefnisins opnuð og gengið að tilboði B.Ó smiða ehf.

Hver koma að verkinu?

Skrifstofa framkvæmda og fasteignaþjónustu Reykjavíkurborgar

Verkkaupi

B.Ó smiðir ehf

Verktaki

VSÓ ráðgjöf

Eftirlit og byggingarstjórn

Efla

Verkefnisstjórn

Gláma-Kím

Arkitektar
Síðast uppfært 11.09.2026