Naustin (Tryggvagata-Hafnarstræti) - Gatnagerð og lagnir

Verkið felst í endurgerð götu og uppfærslu veitna í Naustunum milli Tryggvagötu og Hafnarstrætis. Gatan verður vistgata til að byrja með og seinna meir göngugata.
Verkkaupar eru Reykjavíkurborg og Veitur.
Áætlaður framkvæmdatími: maí 2026 - desember 2026
Undirbúningur
Undirbúningur
Í framkvæmd
Í framkvæmd
Lokið
Lokið

Myndir

Hvað verður gert?

Jarðvinna:
Jarðvegsskipta á í götunni og því töluverður uppgröftur sem leiðir til þess að lokað verður á umferð bíla um götuna á framkvæmdatíma. Ekki er reiknað með að fleygun klappar verði umfangsmikil. Aðgengi gangandi að lóðum og inngöngum verður tryggt allan verktímann.

Veitur:
Gatan verður upphituð og snjóbræðsla lögð í allt göturýmið. Borgarlýsing verður uppfærð; nýir götuljósastrengir, stólpar og lampar. Lögð verður tvöföld fráveita sem tengd verður núverandi fráveitukerfi í Tryggvagötu og Hafnarstræti. Lagðar verða nýjar kaldavatnslagnir og hitaveitulagnir.

Yfirborðsfrágangur:
Nýtt yfirborð götu verður hellulagt ásamt gróðurbeðum og setbekkjum.

 

Hvernig gengur?

September 2026

8. september:

Lagningu hitaveitu er lokið og þessi vika fer í að fyllingar, gatnalýsingarvinnu og undirbúning fyrir 2. áfanga sem hefst í næstu viku. Þá verður unnið áfram í gatnalýsingu og byrjað að grafa fyrir stofnum snjóbræðslu

Ágúst 2026

11. ágúst:

Verkið er á áætlun. Unnið er að því að klára lagninu regnvatslagnar. Næst á dagskrá er undirbúningur fyrir hitaveitulögn.

17. ágúst:

Búið er að leggja allar stofnlagnir fráveituog vatnsveitu. Nú er unnið að því að undirbúa lagningu hitaveitu. Tengidagar hitaveitu verða í næstu viku.

25. ágúst:

Verkið er á áætlun.

Tengidagar fyrir hitaveitu verða fimmtudaginn 27. ágúst og fimmtudaginn 3. september.

Heitavatnslaust verður því frá klukkan 9-14 fyrri daginn og 9-16 seinni daginn á svæðinu kringum Naustin (sjá myndir), og er fólki bent á að hafa skrúfað fyrir alla heitavatnskrana og huga að innanhússkerfum, sjá nánar á heimasíðu Veitna (Heitavatnslaust við Tryggvagötu og nágrenni, Heitavatnslaust við Hafnarstræti og nágrenni).

Heitavatnslokanir
Fyrri lokun, 27. ágúst
Seinni lokun
Seinni lokun, 3. september

28. ágúst:

Athugið að kaldavatnslaust verður við Hafnarstræti 5 þriðjudaginn 1. september milli 7 og 11 (sjá nánar á vef Veitna: Kaldavatnslaust við Hafnarstræti 5)

Júlí 2026

Framkvæmdir ganga samkvæmt áætlun.

Haldið var áfram greftri sunnan megin í Naustum. Grafið var niður á tengipunkt vatnsveitu og bráðabirgðakaldavatnslögn komið fyrir. Næst verður restin af fráveitulögninni komið fyrir og hún lekaprófuð, áður en farið verður í lagningu neysluvatns.

Hver koma að verkinu?

Verkefnisstjóri Reykjavíkurborgar

Emilía Maí Gunnarsdóttir

Verkefnisstjóri Veitna

Guðmundur Freyr Arnarson

Verktaki

Lóðaþjónustan ehf.

Eftirlit framkvæmda

Verkfræðistofa Reykjavíkur

Eftirlit fornminja

VG Fornleifarannsóknir

Verkhönnun

Verkfræðistofa Bjarna Viðarssonar ehf.

Landslagsarkitekt

Landmótun sf
Síðast uppfært 08.09.2026