Skólaþorpið í Laugardal

Skólaþorpið er bráðabirgðahúsnæði sem mun hýsa skóla- og frístundastarfsemi í Laugardal að hluta á meðan á viðhaldsframkvæmdum á núverandi húsnæði stendur.
2024 - 2026
Undirbúningur
Undirbúningur
Í framkvæmd
Í framkvæmd
Lokið
Lokið

Skólaþorpið í Laugardal

Hvað verður gert?

Svo mæta megi stórum viðhaldsverkefnum í Laugarnes-, Laugalækjar- og Langholtsskólum verður færanlegum stofum komið fyrir á horni Reykjavegar og Engjateigs, þar sem nú eru bílastæði.

Skólaþorpið mun samanstanda af einnar hæðar stálgrindarhúsi og lausum kennslustofum sem eru að hluta til samtengdar.  

Skólaþorpið mun rísa í áföngum og áætlað er að fyrstu kennslustofurnar verði tilbúnar veturinn 2025/2026 og hægt að taka þær í notkun í mars 2026 og að þorpið muni rísa í heild sinni 2026.  

Hönnunarstjórn er í höndum Hornsteina arkitekta og landslagshönnun hjá Landslagi.  

Hvernig gengur?

September 2026

Allar 16 færanlegu kennslustofurnar eru nú komnar á lóð Skólaþorpsins en þessa dagana er unnið að utanhússklæðningu þeirra. Þegar þeirri vinnu lýkur verður hægt að ganga frá sökklaklæðningum og í framhaldi af því getur lóðarverktaki lokið lóðarfrágangi við húsin.

Stóra stálgrindarbyggingin, um 900 m² að stærð frá Stólpa ehf., var sett á sökkla sína í síðustu viku. Nú er unnið að þakfrágangi hennar og samhliða því er hafin vinna við utanhússklæðningu. Að þeirri vinnu lokinni verður gengið frá sökklaklæðningum og þá getur lóðarverktaki jafnframt lokið lóðarfrágangi kringum hana.

Auk þess hefur verið unnið að aðkomutorgi við Skólaþorpið sem og gatnaframkvæmdum á Reykjavegi og Hofteigi. Aðkomutorgið er nú nánast fullbúið. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir á Reykjavegi og Hofteigi hefjist um miðjan september og standi fram í miðjan nóvember. Verkinu verður skipt upp í nokkra áfanga til að forðast árekstra við viðburði á Laugardalsvelli.

Video file

Apríl 2026

Flutt var inn í áfanga 1 áttunda apríl en áfangi 1 samanstendur af alls tíu kennslustofum og afmörkuðu leiksvæði. Kennsla fyrir 200 börn er því hafin í Skólaþorpinu.

Unnið er að breyttu deiliskipulagi fyrir áfanga 2 sem samanstendur af sex stökum kennslustofum ásamt 900m2 stálgrindarhúsi sem hýsir kennslustofur og stjórnunarálmu. 

Febrúar 2026

Uppsetning brunakerfis stendur yfir auk þess sem unnið er að frágangi utanhúss, smíði timburpalla og hellulögn þegar veður leyfir. Þá er verið að koma fyrir nýjum útihurðum í stofurnar sem komu frá Sæmundarskóla. Öryggisúttekt er áætluð 20. mars.

Síðustu sex timbureiningahúsin frá Terra eru í framleiðslu og áætlað er að smíði stóru byggingarinnar hefjist seinnipartinn í apríl. Skipulagsstofnun vinnur að yfirferð deiliskipulags sem gert er ráð fyrir að taki gildi seinnihluta mars.

Hver koma að verkinu?

Skrifstofa framkvæmda og fasteignaþjónustu Reykjavíkurborgar

Verkkaupi

Hornsteinar

Hönnunarstjórn

EYKT ehf.

Verktaki

Garðasmíði ehf.

Verktaki

Stólpi Gámar ehf.

Verktaki

Nordic Office of Architecture

Verkefnisstjórn

Norconsult

Byggingarstjórn

Terra einingar

Verktaki
Síðast uppfært 11.09.2026