Blásið til stórsóknar í menntamálum í Reykjavík
Borgarráð hefur samþykkt tvær tillögur um aðgerðir sem miða að því að blása til sóknar í menntamálum Reykjavíkurborgar til að bæta námsárangur í lesskilningi, stærðfræði og vísindalæsi í leik- og grunnskólum.
Í niðurstöðum PISA könnunarinnar sem kynnt var 7. september síðastliðinn kemur fram að frammistaða íslenskra nemenda er undir meðaltali OECD-ríkja og síðri en frammistaða jafnaldra þeirra annars staðar á Norðurlöndunum á öllum þremur sviðum rannsóknarinnar. Jafnframt kemur fram að nemendur í Reykjavík eru yfir landsmeðaltali. Niðurstöðurnar kalla á náið samtal við kennara og annað starfsfólk um framtíð skólamála í Reykjavík.
Mótun tillagna til að bæta námsárangur
Tillaga var samþykkt í borgarráði um að fela skóla- og frístundasviði að móta og leggja fram tillögur að aðgerðum sem miða að því að bæta námsárangur í lesskilningi, stærðfræði og vísindalæsi.
Í umræðu sem fram fór við kynningu PISA-niðurstaðna var lögð áhersla á að árangur í menntakerfinu byggist á markvissum og langtímamiðuðum aðgerðum. Þar voru sérstaklega nefnd snemmtæk íhlutun, öflug eftirfylgni með námsframvindu, styrking íslensku sem annars máls og fagleg forysta innan skóla. Einnig var bent á mikilvægi þess að tryggja samræmd vinnubrögð og jafnan aðgang nemenda að stuðningi óháð skóla eða bakgrunni.
Þessar áherslur eru í góðu samræmi við Menntastefnu Reykjavíkurborgar til 2030 þar sem lögð er áhersla á farsæld barna, jöfn tækifæri, inngildandi skólastarf og að ákvarðanir byggi á þekkingu og markvissri eftirfylgni. Þær eru því áfram mikilvægur grunnur við túlkun nýrra niðurstaðna og mótun aðgerða til framtíðar. Skóla- og frístundasviði er falið að leggja fram tillögur að aðgerðum sem miða að því að bæta námsárangur í lesskilningi, stærðfræði og vísindalæsi.
Tillögurnar skulu fyrst lagðar fram í skóla- og frístundaráði og leikskóla- og daggæsluráði eigi síðar en fyrir lok nóvember næstkomandi og í framhaldi fyrir borgarráð og til umræðu í borgarstjórn.
Stórsókn í menntamálum Reykjavíkurborgar
Borgarráð samþykkti enn fremur tillögu um að stofnað verði til samtals, við kennara og annað starfsfólk í leik- og grunnskóla, um sókn Reykjavíkurborgar í menntamálum.
Með samvinnu aðila verði leitað leiða til að efla leik- og grunnskóla eins og kostur er og blása í kjölfarið til stórsóknar í menntamálum. Með því að taka vel utan um þessa málaflokka er ætlunin að gera líf fjölskyldna í borginni betra. Á meðal verkefna verði málstofa í Tjarnarsal Ráðhússins á haustönn með kennurum og öðru starfsfólki í leik- og grunnskóla þar sem yfirskriftin verður: Hvernig komum við skólastarfi í Reykjavík í fremstu röð?
Í kjölfar málstofunnar verði unnin einföld samantekt og aðgerðaráætlun sem lögð verði fyrir skóla- og frístundaráð og leikskóla- og daggæsluráð sem jafnframt yrði rædd í borgarstjórn.
Vinnuna leiði Björg Magnúsdóttir forseti borgarstjórnar ásamt Bjarna Fritzsyni formanni skóla- og frístundaráðs og Sigrúnu Ástu Einarsdóttur formanni leikskóla- og daggæsluráðs, í samstarfi við skóla- og frístundasvið.
Björg segir það mikilvægast á kjörtímabilinu að efla skólakerfið í Reykjavík og koma því í fremstu röð.
„Við viljum auka námsárangur barnanna okkar og að skólarnir séu eftirsóttir vinnustaðir. Þetta er stórt markmið og til að ná því þurfum við að eiga virkt og gott samtal; kennarar og starfsfólk í leik- og grunnskólum borgarinnar, foreldrar, Skóla- og frístundasvið og kjörnir fulltrúar. Við hlökkum til að blása til sóknar með því að bjóða öflugan hóp velkominn til samtals í Ráðhúsinu," segir Björg Magnúsdóttir, forseti borgarstjórnar.