Náttúruborgin Reykjavík

Blóm við Tjarnarbakkann

Boðið verður upp á tvo áhugaverða viðburði á fræðsludagskrá um borgarnáttúru í september. 

Fræðsludagskráin inniheldur fræðslugöngur þar sem annars vegar verður fjallað um lífríkið við Tjörnina á degi íslenskrar tungu á morgun. Síðar í mánuðinum verður svo fræðsluganga í Grasagarðinum þar sem farið verður yfir fallega liti haustsins. 

Dagur íslenskrar náttúru: Lífið í Tjörninni

Reykjavíkurtjörn er eitt þekktasta kennileiti borgarinnar og er heimkynni fjölskrúðugs dýra- og plöntulífs. En hvernig hefur lífið í og við Tjörnina breyst í gegnum aldirnar?

Endurnar á Tjörninni

Á degi íslenskrar náttúru á morgun miðvikudaginn 16. september klukkan 15:00 mun Benedikt Traustason líffræðingur fjalla um breytingar á Tjörninni og lífríki hennar síðustu þúsund árin. Gangan hefst við aðalinngang Ráðhúss Reykjavíkur.

Haustlitirnir í garðinum - fræðsla í Grasagarði Reykjavíkur

Hvernig göldrum við fram fallega liti í garðinum rétt fyrir veturinn? er fræðsluganga sem verður þann 29. september í Grasagarði Reykjavíkur.

Haustlitir á trjám í Elliðaárdal

Í þessari litskrúðugu fræðslugöngu verður farið yfir hvers vegna plöntur fá haustliti og góð ráð gefin um plöntuval og uppröðun til að fá sem besta og fjölbreyttasta haustliti í garðinn.

Gangan hefst við aðalinngang Grasagarðsins.

 Þátttaka í báðar göngurnar er ókeypis og öll velkomin.

 Athugið að göngurnar verða á íslensku.