Yu Yasuhira hlýtur námsstyrk Ellýjar Katrínar
Yu Yasuhira hefur hlotið námsstyrk Ellýjar Katrínar 2026. Hildur Björnsdóttir borgarstjóri afhenti styrkinn við hátíðlega athöfn í Höfða í gær.
Námsstyrkur Ellýjar Katrínar var stofnaður árið 2024 til að heiðra minningu Ellýjar Katrínar Guðmundsdóttur, fyrrum sviðsstjóra, borgarritara og leiðtoga í loftslags- og umhverfismálum í Reykjavík.
Styrkurinn er veittur árlega til meistaraverkefna til að hvetja til framhaldsnáms í umhverfis- og loftslagsmálum og efla þannig þekkingu á málefninu til framtíðar.
Garðyrkjuferli í einkagörðum á Suðurlandi
Yasuhira hyggst rannsaka í meistaraverkefni sínu „Þjóðfræði fjöltegundagarðyrkju“ þar sem hún mun skoða garðyrkjuferli í einkagörðum á suðurlandi. Hún mun einbeita sér að virku hlutverki margra aðila – plantna, jarðvegs, manna og loftslags – og hvernig þeir fléttast saman bæði innan og utan garðrýma. Með því að rannsaka garðyrkjuvenjur á Íslandi kannar þetta verkefni hvernig fólk aðlagast erfiðum umhverfisaðstæðum með daglegum umhirðu- og ræktunarathöfnum.
Í stað þess að líta á garða sem rými sem eru að fullu stjórnað og hönnuð af mönnum, mun hún nálgast þá sem staði stöðugrar samræðu við náttúrulegt umhverfi. Leiðbeinandi Yu Yasuhira er Helga Ögmundardóttir.
Alls bárust fjórar umsóknir um styrkinn. Í valnefnd sátu: sátu Hrönn Hrafnsdóttir, deildarstjóri loftslagsmála hjá umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar, sem einnig gegndi formennsku, Brynhildur Davíðsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands og Orri Páll Jóhannesson, fulltrúi umhverfis- og skipulagsráðs.