Nágrannavarsla

Teikning af konu og barni á göngustíg.

Nágrannavarsla er samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar og íbúa og gengur út á það að íbúar taka höndum saman í forvarnarskyni.

Nágrannavarsla hefur fyrir löngu sannað sig sem mikilvægur hlekkur í að fækka innbrotum á heimili, í bíla og almennum þjófnaði á eigum fólks. Þar sem nágrannavarsla er virk hefur skemmdarverkum einnig fækkað.

Meginmarkmið nágrannavörslu er að halda afbrotum frá viðkomandi götu/hverfi auk þess sem það tengir fólk saman og myndar þar með öruggara og ánægjulegra hverfi.

Góðir grannar - góð borg

Í nágrannavörslu felst hlutverk íbúa í því að vera „augu og eyru“ götunnar/hverfisins. Gott er að hafa samráð við nágranna í götunni og ræða um nágrannavörslu og hvernig henni skuli háttað.

Við viljum skapa samfélag í Reykjavík sem er vingjarnlegt, áreiðanlegt og öflugt. Það er gott að hafa eftirfarandi í huga þegar kemur að nágrannavörslu.

Hvað felst í nágrannavörslu:

  • Að hafa auga með bíla- og mannaferðum við húsin í kringum sig
  • Að passa upp á að póstur safnist ekki upp í bréfalúgu
  • Setja sorp í ruslatunnur nágrannans þegar farið er í burtu í lengri tíma
  • Leggja bíl sínum í innkeyrslu nágrannans
  • Þegar snjór er yfir öllu er ráðlagt að gengið sé upp að húsi nágrannans og látið líta út sem einhver umferð sé inn í húsið

Skilti og límmiðar

Nágrannar geta fengið uppsett skilti um að í götunni sé nágrannagæsla að uppfylltum reglum borgarinnar um útgáfu og uppsetningu skiltanna. Hvert skilti kostar 11.098 kr.

 

Útbúnir hafa verið límmiðar um nágrannavörslu sem hægt er að líma í glugga við útgöngudyr eða svaladyr.

 

Límmiðarnir eru tiltækir í þjónustuveri Reykjavíkurborgar Borgartúni 12-14 og Ráðhúsi Reykjavíkur. 

Merki fyrir nágrannavörslu.

Hvað þarf að gera til að fá skiltið Nágrannavarsla?

Reglur um úthlutun nágrannavörslu skilta

  1. Allir íbúar Reykjavíkurborgar geta sótt um nágrannavörsluskilti.  
  2. Umsækjandi skal staðfesta að samráð hafi farið fram við íbúa viðkomandi götu eða svæðis með því að haka við eftirfarandi yfirlýsingu í umsókn: „Ég staðfesti að ég hafi haft samráð við íbúa götunnar og að við höfum komið okkur saman um að taka þátt í nágrannavörslu.“
  3. Umsækjandi greiðir kostnað vegna framleiðslu skiltisins samkvæmt gjaldskrá framleiðanda. Verð kemur fram á vefsíðu.
  4. Reykjavíkurborg greiðir kostnað vegna uppsetningar skiltisins.
  5. Reykjavíkurborg áskilur sér rétt til að ákveða endanlega staðsetningu skiltisins með hliðsjón af umferðaröryggi, tæknilegum atriðum og öðrum skipulagslegum sjónarmiðum. Við ákvörðun skal eftir fremsta megni tekið mið af óskum umsækjanda. 

Umsóknarferli

Umsókn er lögð fram í gegnum rafrænt eyðublað á “Mínum síðum” sem verður aðgengilegt í hlekk á vefsíðu Reykjavíkurborgar um nágrannavörslu.

  1. Umsækjandi tilgreinir:
    • Nafn eða tengiliðaupplýsingar og reikningsupplýsingar.
    • Götu eða svæði sem umsóknin nær til.
    • Ósk um nákvæma staðsetningu skiltis.
  2. Umsókn berst framleiðanda skiltisins sem annast framleiðslu og innheimtu kostnaðar frá umsækjanda.
  3. Að greiðslu lokinni er Reykjavíkurborg upplýst um að skilti sé tilbúið til uppsetningar.  
  4. Reykjavíkurborg ákveður staðsetningu skiltisins, sér um að sækja það til framleiðanda og koma því fyrir á viðeigandi stað.

Ábyrgð

  • Reykjavíkurborg ber ábyrgð á vali á staðsetningu og uppsetningu skiltis.
  • Umsækjandi ber ábyrgð á að upplýsingar í umsókn séu réttar og að samráð við íbúa hafi átt sér stað.  
  • Ekki er heimilt að setja upp nágrannavörsluskilti á borgarlandi nema með samþykki Reykjavíkurborgar 
Loftmynd af svæðinu og nágrenni

Góð ráð

Flest innbrot eiga sér stað að nóttu til, þegar enginn er heima og nágrannar sofandi, eða yfir daginn þegar allir eru í vinnu eða skóla.

  • Mikilvægt er að útidyr og bakdyr séu alltaf læstar - líka þegar einhver er heima
  • Að verðmæti liggi ekki á glámbekk og sjáist vel utan frá
  • Dæmi eru um að þjófar hafi læðst inn í anddyri húsa og tekið veski, síma eða bíllykla sem oft eru geymd í anddyri húsa
  • Nágranni geymi aukalykla
  • Góð útilýsing sem sem tengd er við hreyfiskynjara
Stórar umferðargötur í Reykjavík

Ferðalög

  • Engin verðmæti skilin eftir í bifreiðum
  • Fá nágranna sinn til að líta eftir húsinu
  • Láta viðkomandi vita hvaða einstaklingar eru líklegir til að sjást við húsið og gefa upp lýsingu og jafnvel bílnúmer viðkomandi
  • Ekki gefa upp á samfélagsmiðlum að verið sé að fara í ferðalag
Neighborhood watch is a joint initiative of Reykjavík City, the capital area police, and local residents, centered on neighbors working together to prevent crime.

Rétt viðbrögð

  • Inn­brots­þjóf­ur­ gæti enn ver­ið á vett­vangi. Sýndu skyn­semi, ekki fara inn í hús­ið ef þú tel­ur að ein­hver sé inni í því
  • Hringdu strax á lög­regl­una í 112 og til­kynntu inn­brot­ið. Ef þú kem­ur heim og sérð að brot­ist hef­ur ver­ið inn hjá þér er mik­il­vægt að hreyfa ekki við neinu fyrr en lög­regl­an kem­ur
  • Ef ókunn­ug­ur bíll er fyr­ir utan þá get­ur ver­ið gagn­legt að taka nið­ur bíl­núm­er­ið, til dæm­is með því að taka mynd af bíln­um
  • Samfélag þar sem nágrannar sameinast til að skapa öruggari, sterkari og virkari samfélög