Góðir grannar - góð borg - ný nágrannavörsluskilti
Nýtt nágrannavörsluskilti hefur verið komið upp í Stararima í Grafarvogi. Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri, var í Stararima og kynnti nýtt átak um nágrannavörslu.
Íbúarnir sammæltust um að vera með nágrannavakt í götunni í forvarnarskyni og pöntuðu skilti sem nú er komið á sinn stað. Íbúar götunnar fjölmenntu til að fagna nýja skiltinu og ætla að vera með virka nágrannavakt í götunni.
Nágrannavörsluskiltin eru nú í nýrri og breyttri útfærslu og geta borgarbúar sent inn umsókn um að fá skilti og uppsetningu gegn greiðslu. Reykjavíkurborg ákveður staðsetningu skiltisins, sér um að sækja það til framleiðanda og koma því fyrir á viðeigandi stað.
Góðir grannar góð borg
Í nágrannavörslu felst hlutverk íbúa í því að vera „augu og eyru“ götunnar/hverfisins. Gott er að hafa samráð við nágranna í götunni og ræða um nágrannavörslu og hvernig henni skuli háttað. Hvert skilti ásamt uppsetningu kostar 11.098 krónur.
Það er gott að hafa eftirfarandi í huga þegar kemur að nágrannavörslu.
Hvað felst í nágrannavörslu:
- Að hafa auga með bíla- og mannaferðum við húsin í kringum sig
- Að passa upp á að póstur safnist ekki upp í bréfalúgu
- Setja sorp í ruslatunnur nágrannans þegar farið er í burtu í lengri tíma
- Leggja bíl sínum í innkeyrslu nágrannans
- Þegar snjór er yfir öllu er ráðlagt að gengið sé upp að húsi nágrannans og látið líta út sem einhver umferð sé inn í húsið
Nágrannar geta fengið uppsett skilti um að í götunni sé nágrannagæsla að uppfylltum reglum borgarinnar um útgáfu og uppsetningu skiltanna.
Einnig hafa verið útbúnir límmiðar um nágrannavörslu sem hægt er að líma í glugga á áberandi stað við útgöngudyr eða svaladyr. Límmiðarnir eru ókeypis og íbúar geta sótt miðana í þjónustuver Reykjavíkurborgar Borgartúni 12-14 og í Ráðhús Reykjavíkur.